|
Myndir og fróðleikur frá mér Hér munu vonandi birtast reglulega myndir og fréttir af þvi sem ég bralla dags daglega og finnst frásögu færandi |
|
26.04.2012 22:22Hafgeir ÍS 117Hafgeir var að gera sig klárann um síðustu helgi og er núna kominn vestur á Ísafjörð. ![]() Skrifað af Gretar Þór 25.04.2012 23:06Sunnuberg GKEnn einn frá Denna, gamlar loðnumyndir. Alltaf fannst mér Sunnubergið flott skip. Ekki veit ég hvar það er núna en ef ég man rétt þá var það selt til Kanada. ![]() ![]() Skrifað af Gretar Þór 25.04.2012 23:02Systkinin Kristbjörg og MarkúsÞau liggja saman hér í Hafnarfirði og eitthvað á að fara að sameina þau. Eins og Alfons sagði um daginn þá á að færa snurvoðargræjurnar úr Krúsa yfir í Kristbjörgina, sel það ekki dýrara en ég stal því. ![]() Skrifað af Gretar Þór 25.04.2012 17:49Hrefna RE 11Hrefna RE 11 eða Thor a.m.k. gamli Þór var dreginn frá Gufunesi til Njarðvíkur í dag. Gunni tók þessar myndir á símann sinn þegar Auðunn kom með Þór að bryggju í Njarðvík en þar á að rífa hann blessaðann gamlingjann. ![]() ![]() ![]() ![]() Skrifað af Gretar Þór 24.04.2012 22:38VorblíðaÞað hefur verið líf og fjör í vorblíðunni sem verið hefur hér í Hafnarfirði að undanförnu. ![]() ![]() ![]() Skrifað af Gretar Þór 24.04.2012 22:35Bæjarfell RE 65Bæjarfellið er nú farið að róa á grásleppu þessa tók ég þega þeir voru að gera klárt uppá bryggju í Rvík. ![]() Skrifað af Gretar Þór 23.04.2012 23:091733 Vöttur REÞeir voru að græja sig fyrir grásleppuna fyrir páskana . ![]() Skrifað af Gretar Þór 23.04.2012 21:11Kókdósin Sigurpáll GK 36Kókdósin eins og álbáturinn Sigurpáll er stundum uppnefndur var á veiðum á Leirnum á laugardag þegar Jón Steinar frændi tók þessar myndir af honum ![]() ![]() Skrifað af Gretar Þór 23.04.2012 20:24Jóhanna GísladóttirJóhanna Gísladóttir að koma í land í Grindavík í blíðunni á laugardag. Hún var með um 200 kör af löngu og keilu. ![]() ![]() ![]() Jóhanna Gísladóttir © Jón Steinar Sæmundsson Skrifað af Gretar Þór Flettingar í dag: 500 Gestir í dag: 174 Flettingar í gær: 840 Gestir í gær: 291 Samtals flettingar: 1107838 Samtals gestir: 278379 Tölur uppfærðar: 16.5.2012 21:23:13 |
Eldra efni
clockhere Nafn: Gretar ÞórTölvupóstfang: gretar@flateyri.isTenglar
|