Myndir og fróðleikur frá mér

Hér munu vonandi birtast reglulega myndir og fréttir af þvi sem ég bralla dags daglega og finnst frásögu færandi

Færslur: 2012 Febrúar

29.02.2012 22:07

1516 Fjóla SH 121

Fjóla að koma í land í Sandgerði fyrir stuttu.  Hún er merkt SH en er skráð GK ég veit ekki alveg hvað það á að þýða.  Hún var ekki að fiska mikið þarna enda skítaræla hjá þeim voru með tæpt tonn.






29.02.2012 20:20

2338 Una HF 7

Una er komin vestur á Flateyri og er farin að róa.  Hér er hún að koma í land á Flateyri.


Una HF 7  mynd Páll Önundarson

28.02.2012 22:50

2672 Óli Á Stað GK 99

Óli Á Stað að koma í land í Hafnarfirði seinnipartinn í dag.  Hann var með um 3.5. tonn.






28.02.2012 19:41

2820 Kristján HF 100

Kristján HF að koma í land í Hafnarfirði í morgun.  Hann var með rúm 7 tonn mest þorskur.  Það varla sér á honum við þessi 7 tonn.  Það hefur fiskast ágætlega að undanförnu þó nokkuð misjafnt á milli daga 3, 5, og 7 tonn og 13 tonn einn daginn þá sá þokkalega á honum sagði Atli skipstjóri í morgun.








27.02.2012 22:59

2608 Gísli Súrson GK 8

Gísli að koma í land í Grindavík á laugardag.




27.02.2012 14:29

2600 Guðmundur VE 29

Já það var Guðmundur sem átti rassinn fagra.  Gunni bróðir tók þessar myndir af honum rétt við innsiglinguna á Grindavík í gærmorgun.






Guðmundur VE © Gunnar Þór

26.02.2012 22:45

Fallegur rass

Hver gæti nú átt þennann fagra rass?

26.02.2012 20:44

2670 Þórkatla GK 9

Þórkatla að koma í land í Grindavík í gær.  Það hafa verið fín aflabrögð hjá línubátum í Grindavík að undanförnu.  Ég veit þó ekki hvað þeir voru með þarna.  Það er Stakkavík sem gerir Þórkötlu út.




26.02.2012 18:04

Vilhelm Þorsteinsson

Vilhelm að taka nótina inn suður af Krísuvíkurbjargi í gær.






26.02.2012 15:48

Loðnumiðin

Já loðnuskipin voru ekki langt undan Krísuvíkurberginu í gær.  Ef mér skjátlast ekki þá eru Aðalsteinn og Sighvatur á efstu myndinni.  Hákon og Þrándur á næstu tveimur og svo Huginn á síðustu myndinni en ég held að hann hafi farið að landa í færeyjum.








26.02.2012 13:31

Ingunn AK

Ingunn á leið til löndunnar á Vopnafirði.  Geiri tók þessar myndir fyrir austan land á dögunum. 




Ingunn AK © Þorgeir Guðmundsson

26.02.2012 02:23

Þrándur í Götu

Þessi flotti færeyingur er nú á Faxaflóa, væntanlega að frysta loðnu í rólegheitum.  Hann var í gær laugardag við veiðar suður af Krísuvík.

25.02.2012 20:07

Ólafsvík í dag

 Mjög góð aflabrögð hafa verið í öll veiðarfæri .  Útgerðarmenninnir  Bárður Guðmundsson á Kristni SH og Kristjan Kristjánsson útgerðarmaður á Flateyri voru að ræða gæði fisksins  sem landað var úr Kristni SH Var aflinn 11 tonn á 36 bala
Kv Alfons



Bárður og Krissi © Alfons Finnsson

24.02.2012 23:22

Rem Hrist

Þessi bátur er ekki med venjuleg afgasrör (skorstein) heldur er afgasid tekid út á sídunni. Þad gerir tad ad verkum ad hann lítur ógedslega út, alltaf. Tetta átti ad vera snilldarlausn frá ULSTEIN en gengur augljóslega ekki upp. Nokkur önnur skip hafa verid byggd med tessari lausn en tad er verid ad breyta teim flestum
 
Kveðja frá  Egersund


Kristinn Andri




Rem Hrist út um klefagluggann í Dusavik i dag © Kristinn Andri Þrastarson

23.02.2012 22:33

Loðnumiðin

Það hefur verið líf og fjör á loðnumiðunum fyrir utan Stokkseyri og Eyrabakka í dag.  Björn Ingi Bjarnason sendi mér þessar myndir sem hann tók við Ísólfsskála á Stokkseyri seinnipartinn í dag.  Þarna má sjá nokkur loðnuskip á þó nokkið löngu færi.  Ég giska á að þetta sé Júpiter sem er þarna lengst til vinstri og Norðborgin sem er þarna stærst.  En spekingana tvo þekki ég ekki en þeir voru að virða firir sér skemmtilegt útsýnið úr fjörunni.








Loðnubátar © Bibari
Flettingar í dag: 500
Gestir í dag: 174
Flettingar í gær: 840
Gestir í gær: 291
Samtals flettingar: 1107838
Samtals gestir: 278379
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 21:23:13
clockhere

Nafn:

Gretar Þór

Tenglar