|
Myndir og fróðleikur frá mér Hér munu vonandi birtast reglulega myndir og fréttir af þvi sem ég bralla dags daglega og finnst frásögu færandi |
|
22.05.2012 22:191178 Blíða SH 277Patreksfirðingurinn og Fjallabróðirinn Halldór Jóhannesson eða Dóri Jóh skipstjóri á Blíðunni lagðist rétt aðeins að bryggju á Grundarfirði á fimmtudag. Þeir komu, hífðu eitt eða tvö beitukör um borð og fóru svo stoppuðu ekki meira en 15 mínútur. Þeir héldu kannski jafnvel að Dóri hefði lagst að bryggju bara rétt svona til að svara þessu símtali sem beið hans. Er ekki annars bannað að tala í símann við stýrið :) . Þeir eru að fiska beitukóng í gildrur eru þó að prófa sig áfram með plóg líka. Það er Stormur Seafood frá Patreksfirði sem gerir bátinn út. ![]() ![]() ![]() ![]() Skrifað af Gretar Þór 22.05.2012 21:451019 Sigurborg SH 12Sigurborgin kom og landaði á Grundarfirði miðvikudaginn var. Skipið er nú með heimahöfn á Grundarfirði en þeir koma nú ekkert oft þangað eru mest fyrir norðan á Siglufirði. En hún var hér í Breiðafirðinum á veiðum í smá tíma og landaði s.s. tæpum þrjátíu tonnnum hér í síðustu viku en ég held þeir séu komnir norður fyrir land aftur. ![]() ![]() ![]() ![]() Skrifað af Gretar Þór 22.05.2012 19:381813 Groddi BA 2Groddi var að koma í land með grásleppunetin hér í Hafnarfirði á dögunum. Hann er búinn að vera að róa á grásleppu hér í firðinum í vor. ![]() ![]() ![]() Skrifað af Gretar Þór 21.05.2012 19:401928 Halldór NS 302Félagarnir á Halldóri NS voru að taka upp grásleppunetin úr Breiðafirðinum á fimmtudag. Þeir eru hættir á grásleppunni og ætla að koma sér austur en þeir eru frá Bakkafirði. Þeir voru með allskonar grams kola, þorsk , skötusel og eitthvað af grásleppu. ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() Skrifað af Gretar Þór 20.05.2012 23:19Aldan ÍS 47Gísli Jón og félagar hans á Öldunni komu inn til Grundarfjarðar á fimmtudag og lönduðu þar 12 tonnum af rækju. Þeir báru sig vel góð tíð og góð veiði. Ekki veit ég hvað þeir heita strákarnir þarna á myndinni en ef mér skjátlast ekki þá er þessi skeggjaði enn einn bróðirinn frá Ármúla bróðir þeirra Gísla Jóns og Adda á Ísborginni. ![]() ![]() ![]() Skrifað af Gretar Þór 20.05.2012 10:13Frosti VE 144Frosti kom í land á Grundarfirði s.l. miðvikudagskvöld og landaði á fimmtudag. Þeir lönduðu um 50 tonnum sem keyrt var norður á Grenivík. Á hádegi í dag kemur Frosti hins vegar í land á Grenivík þar sem þeir landa og verður skipið svo til sýnis þar í dag. En eins og menn vita þa voru Grenvíkingarnir að kaupa þetta skip frá Vestmannaeyjum þar sem hann hét Smáey. ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() Skrifað af Gretar Þór 15.05.2012 22:237393 Kári II SH 219Kári í Rifshöfn á sjómannadaginn í fyrra. ![]() Kári II SH 219 © SIgurður Ólafsson Skrifað af Gretar Þór 15.05.2012 22:21SæmundurSæmundur er í Njarðvík þar sem hann verður skveraður. Hann er nú búinn að liggja nokkuð lengi verkefnalaus en nú stendur til að reyna að selja hann þess vegna verður hann tekinn aðeins í gegn. ![]() Skrifað af Gretar Þór 15.05.2012 16:407729 Petra ST 29Það var verið að prufukeyra Petru ST áðan hér í Hafnarfirði. Petra er nýr Sómi 797 smíðaður fyrir Ástvald Einarsson útgerðarmann á Hólmavík. Framleiðandinn líka að mynda bátinn þarna áðan, ég var aðeins of seinn svo hann var betur staðsettur :), það er búið að græja á hann rúllur svo það mætti segja manni að hann sé á leið á srandveiðar. ![]() ![]() ![]() ![]() Skrifað af Gretar Þór Flettingar í dag: 112 Gestir í dag: 64 Flettingar í gær: 816 Gestir í gær: 271 Samtals flettingar: 1112939 Samtals gestir: 280433 Tölur uppfærðar: 23.5.2012 07:44:14 |
Eldra efni
clockhere Nafn: Gretar ÞórTölvupóstfang: gretar@flateyri.isTenglar
|